Gleðileg hátíð allir saman. Hvað segiði þá? Eru ekki bara allir
ánægðir með jólin? Held það bara. Vá hvað maður er búinn að borða
mikið yfir jólin, gengur ekki lengur. Af hverju þarf alltaf allt að
vera í boði, hehe. Jólamaturinn, konfekt, smákökur, jólaöl og bara
hvað sem er. Sem betur fer eru jólin bara einu sinni á ári 
Jæja, þar sem ég hef ekkert að gera, ætti samt að vera sofandi
þar sem ég var að skutla Svani í vinnuna og ég er bara ein heima,
því það er engin vinna hjá mér í dag, að þá ætla ég aðeins að
blogga um jólin og svona. Vonandi verður eitthvað varið í þetta
blogg hjá mér.
Ég nenni ekki að segja frá þegar ég var úti í Minneapolis, en
þið getið lesið það á hinni síðunni minni, www.blog.central.is/taken þar
sem ég er að blogga ásamt Ingunni og Guðný. Held að ég sé búin að
blogga þar um ferðina, endilega kíkið á þessa síðu 
En jæja. Á föstudaginn eftir vinnu fó ég í klippingu,
fyrsta sinn á ævinni sem karl klippir mig. Mjög flott bara finnst
mér. Ákvað að breyta til, alltaf búin að vera með svipuðu
klippinguna. Eftir klippinguna fór ég og Svanur við heim til
mömmu og pabba. Ætluðum að bera út jólakort, en nenntum því svo
ekki. Fórum að passa hjá Atla í smá stund, gekk bara vel þar sem
hann Arnór Bjarmi var bara sofandi, enda klukkan orðin hálf tíu.
Svo tókum við bara einn rúnt í Garðinum og fórum svo bara heim að
sofa.
Á laugardaginn var ég að passa Brynjar Berg. Ég og Svanur tókum
hann með okkur að bera út jólakort, ég ætlaði að vera voða dugleg
að leyfa honum að hlaupa líka í nokkur hús, en hann bara steinsvaf,
svo þreyttur þessi dúlla. Þannig að ég og Svanur bárum bara kortin
út. Gekk rosa vel bara. Fórum svo til ömmu og afa þegar við
vorum búin að þessu, fengum að borða þar eins og vanalega. Fór svo
heim og bað mömmu um að lita á mér hárið. Orðin ýkt fín um hárið
Svo þegar mamma var búin að lita mig, fór ég og Svanur í Reykjavík,
í möndlugraut hjá mömmu hans og pabba. Mjög fínt bara, en ég fékk
ekki möndlugjöfina
hehe, mamma hans fékk hana. Svo þegar við
vorum búin þar, röltuðum við á Laugarveginn, mikið af fólki þar, en
samt ekki eins mikið og ég bjóst við. Hittum þar vini hans Svans,
röltuðum svo bara eitthvað um og löbbuðum svo bara heim um eitthvað
svona 1 leytið held ég, eða 12, man ekki alveg. Svo bara höfðum við
það kósý 
Á sunnudaginn fór ég í kringluna, var að kaupa seinustu
jólagjafirnar, bara 2 svona aukagjafir. Fór svo heim, kvaddi Svan
og keyrði svo heim til mömmu og pabba. Kláraði að pakka inn
jólagjöfum, fór með pakka í hús, fór í sturtu að gera mig fína og
svo var jólamaturinn klukkan 6. Við vorum bara 6 sem borðuðum, ýkt
skrítið að vera svona fá. Höfum alltaf verið við fjölskyldan og svo
strákarnir hennar Svövu, en núna var Atli í Keflavík og Sindri Þór
á Kanarí þannig að Brynjar var bara einn hjá okkur. Skrítið að hafa
ekki Sindra um jólin
Svo opnuðum við pakkana, var bara ánægð með
það sem ég fékk. Svo um kvöldið fórum við heim til Kristbjargar,
Svanur kom svo þangað
fórum svo bara heim, opnuðum pakkana frá
hvort öðru, mjög sátt með gjöfina, takk ástin mín
(K)
Á mánudaginn sváfum við bara út, tókum rúnt og svo fórum við í
mat til mömmu hans og pabba. Hangikjöt og laufabrauð, mjög gott
bara. Fórum svo heim, vinir Svans komu að spila, enduðu fleiri
hérna en við bjuggumst við, en voru svo öll farin um svona hálf
3.
Í gær gerðum við bara ekki neitt. Sváfum út, og svo vorum við
bara í leti í gær, vorum í náttbuxum allan daginn og horfðum á
sjónvarpið og höfðum það bara kósý
Mjög gott að slappa svona
af.
Jæja, ég held að ég sé búin að blogga nóg. Ætla að fara að sofa
aftur, er svo þreytt. Veit ekki hvort ég bloggi eitthvað fyrir
næsta ár, þannig að ég segi bara gleðilegt ár og takk fyrir það
gamla 
Ps. Er svo að fara að setja inn myndir. Endilega kíkið á það,
www.picturetrail.com/eydiseh
